Fyrir hvaða peninga?

Þetta er rosalega ábyrg efnahagsstjórn. Þeir kunna svo sannalega að skera niður þessir vinstri flokkar. Það á bara að fara í stöðugarframkvæmdir sem eru gæluverkefni og ekki beint þarfa þing, hvað þá á kreppu tíma.

Og hverjir haldið þið kæru launþegar að borgi fyrir þessi gæluverkefni og annað? Auðvitað efnahagslífið! Þeir þurfa að sjálfsögðu að hækka skattana umtalsvert meira til að borga enn fleiri lán en nú þarf fyrir og það leiðir til þyngri rekstar hjá fyrirtækjum sem verða að minna við sig og fækka starfsmönnum, einnig vegna þess að neysla einstaklinga og kaupmáttur lækkar með hærri sköttum.

Ég leifi mér nú bara að segja það


mbl.is Vill af stað með nýjan spítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Henning Árni Jóhannsson

það skapast nú ágætlega mörg störf við að byggja nýjan stóran spítala, þeir hagræða miklu í að fá spítalan á einn stað í staðin fyrir að vera með hann á mörgum í dag, finnst hugsanlegt að lífeyrissjóðirnir komi að fjármögnun ef það verður ráðist í þessar framkvæmdir

Henning Árni Jóhannsson, 6.5.2009 kl. 15:55

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það verður margfalt dýrara að gera ekkert. Spítalinn er vart lengur sjúklingum og starfsfólki bjóðandi en það vita að sjálfsögðu ekki þeir sem þangað ekki koma eða halda að þeir muni aldrei þurfa að koma þangað.

Finnur Bárðarson, 6.5.2009 kl. 16:11

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Mín skoðun er að nota húsnæði sem nú þegar hefur verið byggt og spara okkur þann pening. það er hagur allra landsmanna. Svo myndi ég vilja sjá óhefðbundnar lækningar á þessu sjúkrahúsi, sem eru í raun gömlu hefðbundnu lækningarnar sem nútíma læknavísindi kæfðu niður á sínum tíma. Í Bretlandi og Þýskalandi eru þannig lækningar notaðar samhliða svokölluðu hefðbundnu lækningum með mjög góðum árangri. þarna yrði sá  mesti sparnaður sem um gertur í Íslensku heilbrigðiskerfi. Ég er næstum viss um að við erum með kunnáttu í landinu nú þegar í pólverjunum okkar sem eru það nálægt Þýskalandi að kunna þetta allt meir og minna. Ég tek fram að ég hef mikla reynslu af slíkri læknishjálp og þekki hvað ég er að tala um og hvað það getur sparað mikið á allann hátt. Var svo lánsöm að kynnast því þegar ég bjó erlendis  með mjög góðum árangri. Með fyrirfram  þökk Ögmundur.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.5.2009 kl. 16:16

4 Smámynd: Haraldur Pálsson

Margar góðar athugasemdir, og ég skil t.d. mjög vel sjónarmið Finns og geri mér vel grein fyrir því að ég gæti allt eins lagst inná þennan spítala einn daginn.

En hugsum þetta í aðeins stærra samhengi.

Ef ég á gamlan skota og þarf að eyða miklu fé árlega við að halda honum uppi, ég er hinsvegar mikið skuldsettur og þarf að vinna úr því. Er þá hagkvæmara fyrir mig að kaupa mér porsche á lánum ofan á hin lánin því þá verður viðgerðarkosnaðurinn minni?

Þannig færi meira af tekjum í afborganir á lánum og ég hefði minna til að kaupa mat, föt og annað nauðsynlegt.

Ég myndi ekki halda að það væri skynsemi, meira eins og hugsunarháttur manna hérna 2007. Það þarf að borga stóran hluta af þeim skuldum sem fyrir eru áður en svona gæluverkefni verða og reyna frekar að nota þetta fjármagn í að lækka skattprósentu og þannig örva upp Atvinnulífið, þannig skapast atvinnan og meiri skattur í peningum kemur inn á móti.

Haraldur Pálsson, 6.5.2009 kl. 16:20

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Anna: Nei takk engar óhefðbundnar lækningar inn á LSH. Hins vegar finnst mér að sú grein eigi fullan rétt á sér að öðru leiti. Endurtek enn og aftur nýr spítali er eini kosturinn út frá öllum sjónarmiðum.

Finnur Bárðarson, 6.5.2009 kl. 16:26

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Langar að bæta við að ef við hugsum ekki í lausnum er þetta allt búið hvort eð er. Enginn getur orðið góður yfirmaður ef hann fær aldrey stuðning frá undirmönnum við höfum öll leyfi til að koma með okkar innlegg og skoðanir. Sókn er besta vörnin. Og svo bjargráðasjóður sem verður óhjákvæmilega að stofna hér á landi til að hjálpa þeim sem minnst mega sín. Góðir yfirmenn hlusta á undirmenn sína og öfugt. þannig getum við þetta. það er ekki himinn og haf á milli okkar, við erum bara rúm 300.ooo þúsund. Bilið verður ekki stærra en við leyfum því að vera á milli okkar.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.5.2009 kl. 16:27

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Mitt vandamál hefur verið að ég hef kostað óhefðbundnu lækningarnar mínar sjálf og þar með sparað ríkinu mikla peninga því þar hef ég fengið hjálp sem hefðbundnar ekki gátu hjálpað mér með. Hefði orðið mjög dýr fyrir þjóðfélagið fyrir löngu síðan ef ég hefði ekki gert það. Veit ekki af hverju má ekki taka þetta inn í tryggingarkerfið. Lækna orsök vandans í staðinn fyrir að lækna afleiðingarnar, sem er eilífðarpakki því aldrey er tekið á rót vandans. Yrði LSH ekki betri spítali með því. Efast ekki um Finnur að þú hefur einhver rök fyrir því sem þú ert að segja en þekki þau bara ekki.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.5.2009 kl. 16:40

8 Smámynd: doddý

- sameiningin var vitleysa

- nýja byggingin er vitleysa

- það er sparað svo mikið í dag að það jaðrar við öryggismörk

- FYRIR HVAÐA PENINGA Á AÐ BYGGJA?

....... fyrir þá peninga sem sparast við að minnka þjónustu enn frekar við þá sem á þurfa að halda.

lifið heil og hraust kv d

doddý, 6.5.2009 kl. 17:27

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Vill einhver velta fyrir sér sparnaðinum af óhefðbundnum lækningum?

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.5.2009 kl. 17:38

10 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæl öll,

vil bara minna á að gamli Landspítalinn sem opnaði 1930 var byggður í síðustu kreppu sem atvinnubótarvinna. Hann hefði aldrei komist í gegnum þingið á sínum tíma ef ekki hefði verið fyrir atvinnuleysið.

 Anna; óhefðbundnar lækningar eru alltaf viðbót við hinar og af þeim sökum alltaf kostnaðarauki.

Gunnar Skúli Ármannsson, 6.5.2009 kl. 22:01

11 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Gunnar. þær yrðu viðbót sem sparar. það má líkja því við að hreinsa burt illgresi með rótum en ekki bara hreinsa ofan af toppnum eins og hefðbundnu lækningarnar gera í svo mörgum tilfellum. Hvað kostar einn dagur á sjúkrahúsi? það mætti spara margar  innlagnir með þessu móti svo maður tali nú ekki um mannlega þáttinn að fólk fái raunverulega hjálp en ekki yfirklór og endalaust af lyfjum sem oft á tíðum gerir  fólk enn veikara af aukaverkunum. En lyfjarisarnir yrðu ekki ánægðir og myndu koma með login mótrök. þeir eru ekki að hugsa um sjúklingana. það er engin líknarstarfsemi hjá þeim eða mjög takmörkuð alla vega. þar er græðgi númer eitt. þetta eru ekki bara kellingabækur þó ég sé kerling. Í hverju telur þú að aukinn kostnaður myndi liggja með óhefðbundnum lækningum? þekkir þú til þeirra af eigin reynslu?

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.5.2009 kl. 06:20

12 Smámynd: doddý

til gunnars og önnu- ég leyfi mér að efast um að spítalinn hafi verið byggður einungis vegna þess. þá sárvantaði spítala. nú eigum við spítala fyrir, hvaða aðstæður voru þá fyrir sjúka? þetta er ekki sambærilegt. ég veit allt um það að hér var hlúð að sjúkum áður en landspítalinn byggðist. þetta með rætur og illgresi er líka eitthver misskilningur. þið skiljið ekki að milljarðar sem fara í nýjan spítala eru teknir úr kerfi sem er nú þegar fjársvelt. það er akkúrat tímar nú sem engum dettur í hug að hugsa um óhefbundnar lækningar á lsh því það er talið kosta. það líður ekki langur tími þar til lsh hefur ekki fjármagn til að uppfylla kröfur sem burðarliður í heilbrigðiskerfi íslendinga. ætliði að taka lán hjá útlendingum fyrir nyjum spítala? kv d

doddý, 8.5.2009 kl. 10:42

13 Smámynd: doddý

.. og ekki er skemmtilegra að rökræða við krakka sem heldur að allt sé að gerast í fyrsta sinn. vertu fegin að hafa ekki verið undir járnfrúnni á áttunda áratug (ef þú veist hver hún var), og vertu ekki með kjaft. allir sem eru tíu ára og eldri gera sér grein fyrir því að hlutir verða ekki keyptir nema peningar séu til og þeir sem fá lánað eiga líka að skila. kv d

doddý, 12.5.2009 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband